Færslur

Sýnir færslur frá febrúar, 2019

Vangaveltur 1. febrúar 2019

Mynd
Alveg frá því að Ásrún byrjaði í leikskóla hef ég verið alveg rosalega þakklát fyrir hve góður leikskólinn er hèrna á króknum. Enn efldist þakklætið þegar Vala Mist byrjaði svo í leikskólanum. Starfsfólkið er frábært, leggur mikinn metnað í skólastarfið og maður finnur hve vænt þeim þykir um stelpurnar okkar. Enda leið báðum stelpunum okkar alveg rosalega vel í leikskólanum og höfðu yfirleitt ekki tíma til að kveðja því það lá svo mikið á að komast inn á deild í faðm starfsmannana. Svo við foreldrarnir gátum haldið áfram áhyggjulaus út í daginn, jafnvel það áhyggjulaus að maður kom of seint að ná í dömurnar 🙈 Það að upplifa slíkt traust varðandi það dýrmætasta sem maður á er ekki sjálfsagt og er í raun ómetanlegt. Einnig er ómetanlegt að fá dásamleg listaverk heim, sem við myndum ekki fá nema vegna áðurnefnds yndislega starfsfólks. Í þeim felast minningar sem eru ákaflega dýrmætar 💕 Efri myndin er eftir Ásrúnu og sú neðri eftir hana Völu Mist. Báðar voru þær um eins og hál