Færslur

Sýnir færslur frá maí, 2017

Vangaveltur 11. maí 2017

Vá hvað það er gott að vera komin heim. Það hlýjar hjartað hve vel er tekið á móti okkur, alls staðar sem við komum fáum við góðar kveðjur, knús og bros. Þessi samhugur í samfélaginu okkar er ómetanlegur og eiginlega ekki hægt að lýsa honum með orðum. Við erum ennþá að koma okkur í rútínu enda margt nýtt að læra með litla hjartadrottningu á heimilinu með öllum sínum fylgihlutum og lyfjum. Sem betur fer á móðirin við skipulagsáráttu að stríða en það hefur hjálpað okkur í að koma öllu fyrir 🙂 Rússíbaninn heldur samt örlítið áfram en á þriðjudagsmorgun fannst okkur prinsessan eitthvað slöpp og ekki lík káta og hamingjusama barninu sem við þekkjum, svo við kíktum upp á sjúkrahús hér til að fá fagleg augu að skoða hana. Eftir blóðprufu þar og almennt tékk vildu þau hafa vaðið fyrir neðan sig svo við skruppum til Akureyrar í frekari próf, en á leiðinni ákvað daman að hressast við þannig að við mættum þangað með hjalandi ungabarn. Þau tóku engu að síður prufur sem komu vel út svo vi

Vangaveltur 6. maí 2017

Við erum aðeins að gleyma okkur í tilkynningaskyldunni enda erum við hálf upptekin við að springa úr hamingju... við erum nefnilega komin heim! 😁

Vangaveltur 2. maí 2017

Það gleður okkur að segja ykkur að við erum rúmlega hálfnuð heim, erum komin á Barnaspítalann í Reykjavík! Vonum að það verði ekki langt stopp, en við erum alveg afskaplega ánægð að vera komin hingað ❤