Færslur

Sýnir færslur frá apríl, 2026

Vangaveltur 25. apríl 2026

Lengi vel hef ég ætlað að skrifa fæðingarreynsluna þegar ég átti hana Sólrúnu Ingu, bæði fyrir mig til að eiga og til að deila sögu sem er jákvæð úr heilbrigðiskerfinu, því einhvernvegin heyrum við alltaf meira af hinum neikvæðu og því sem er að. Alla meðgönguna fékk ég frábæra þjónustu, hvort sem það var í heimabyggð á Sauðárkróki, á Akureyri eða á Landspítalanum. Alls staðar mætti ég faglegu og góðu viðmóti þar sem á mig var hlustað og mér gefinn sá tími sem ég þurfti, en ég viðurkenni fúslega að þetta var ansi flókin meðganga tilfinningalega og vissi ég oft ekki í hvorn fótinn ég átti að stíga. Ég var hins vegar mjög meðvituð um það og í góðum tengslum við ljósmóðurina mína og gat talað við hana og létt á mér þegar þurfti og sýndi hún mér allan þann stuðning sem ég þarfnaðist. Líkamlega gekk meðgangan eins og í sögu (eftir fyrstu vikurnar þar sem ælutíðnin var ca. 5 sinnum á dag) og stefndi ég að því að eiga í gegnum leggöng á sjúkrahúsinu á Akureyri. Settur dagur var 21. apríl en e...