Færslur

Sýnir færslur frá mars, 2019

Vangaveltur 22. mars 2019

Mynd
Um daginn helltist yfir mig sorg, það mikil að ég náði varla andanum. Það að Vala Mist væri dáin skall á mér af fullum þunga og mér fannst ég ekki ná að yfirstíga það. Mikið sem mér brá, lífið var komið í nokkuð eðlilegar skorður og við farin að ná takti í hinu nýja daglega lífi. Ég hélt að ég væri einfaldlega komin lengra í sorgarferlinu en það að missa öll spilin úr hendinni og hafa ekki orku í neitt. Þennan sama dag rakst ég á grein á internetinu sem hjálpaði mér gífurlega að skilja hvernig sorg virkar, a.m.k. í mínu tilfelli, því vildi ég deila þessu með ykkur. Ég setti inn myndir með færslunni til að útskýra málið betur. Á myndunum sjáið þið kassa með bolta inn í og sársauka/sorgar-hnapp. Í upphafi er boltinn risastór og fyllir nánast upp í kassann, þannig að þú getur eiginlega ekki hreyft kassann án þess að boltinn ýti á hnappinn. Hann skoppar um í kassanum og ýtir á hnappinn aftur og aftur. Þú hefur enga stjórn á því og sársaukinn blossar upp í hvert sinn. Stundum er það