Færslur

Sýnir færslur frá júní, 2021

Vangaveltur 5. júní 2021

Í gær hittum við fjölskyldan konu sem við höfum ekki hitt síðan síðasta sumar, sem er í raun kannski ekki óvenjulegt á tímum Covid. En það sem sat með mér var ein lítil setning sem hún sagði við mig þegar hún horfði á dóttur mína: "Ég sé svo mikinn mun á henni, það er svo miklu bjartara yfir henni". Eitt augnablik átti ég erfitt með að halda aftur af tárunum og ég fylltist hlýju innra með mér. Hlýju og létti. Ég þakkaði henni fyrir hlý orð og hve mikils virði þau væru mér. Því leiðin hingað er ekki búin að vera einföld og ég veit vel að vegferð okkar er ekki lokið, frekar en annarra sem lifa lífinu. Ég hef oft fengið að heyra hve vel við stöndum okkur í þessu öllu, við séum yfirveguð og skynsöm. Ykkur að segja líður mér oft á tíðum alls ekki þannig, alveg ekki. Meira svona eins og ég sé með allt niðrum mig, veit ekki í hvorn fótinn ég á að stíga, segi eða hugsa óviðeigandi hluti og missi kúlið í tíma og ótíma. Tala nú ekki um tárin sem streyma yfirleitt á óheppilegasta tíma.