Um síðuna

Lengi vel hef ég skrifað um Völu Mist og hvernig tilfinningar mínar hafa þróast og breyst eftir því sem lífið líður áfram. Allt fór þetta fram á Facebook í kjölfarið að Hulda, frænka Vals, tók sig til og hrundi af stað styrktarsöfnun fyrir okkur meðan við vorum í Lundi með Völu Mist í öllum aðgerðunum. Hér er textinn þann 1.mars 2017 frá Huldu sem startaði þessu öllu saman:
Lilja Gunnlaugsdóttir og Valur Valsson, búsett í Áshildarholti rétt við Sauðárkrók, eignuðust fallega stúlku þann 12.janúar s.l. Stúlkan var búin að eiga erfiðar síðustu vikur í móðurkviði og höfðu mæðgurnar verið í ströngu eftirliti frá því að hraðtaktur kom í ljós í mæðraskoðun á 34 viku. Stúlkan fór ásamt foreldrum sínum til Svíþjóðar þar sem gera þurfti opna hjartaaðgerð á henni. Dvölin hefur verið lengri en áætlað var og ennþá er óvíst hvenær þau komast heim með dömuna. Lilja og Valur eiga fyrir aðra dóttur, Ásrúnu. Hún er 5 ára og er mjög dugleg stelpa sem bíður spennt eftir að fá mömmu og pabba heim með litlu systur. „Þetta byrjaði allt með því að ég fór í hefðbundna mæðraskoðun, komin 34 vikur, þann 21.desember.“ Sagði Lilja okkur. „Þá kom í ljós hraðtaktur hjá dömunni, slögin fóru í allt að 230 slög á mínútu sem er verulega yfir mörkum. Þá fór ég á Akureyri í frekari skoðun og var send samdægurs til Reykjavíkur með flugi og var lögð inn á Landsspítalann. Þar var reynt að meðhöndla hraðtaktinn hjá dömunni í gegnum mig, með hjartalyfjum.“ Þarna voru aðeins 3 dagar til jóla og allur undirbúningur fyrir jólin stoppaði og hefur Lilja ekki enþá komist heim til sín síðan þann 21.desember. „Meðhöndlunin með hjartalyfjum í gegnum mig gekk ágætlega og náðum við 37 vikum og 2 dögum, þá var hún tekin með keisara þann 12.janúar síðastliðinn. Þá staðfestu læknarnir eins og var grunur um að hún væri líka með stíflaðan ósæðarboga og þrengingu á ósæðinni sem yrði að laga með hjartaaðgerð í Svíþjóð.“ sagði Lilja. Þau fóru til Lundar þann 16.janúar og fór daman í aðgerð þann 19.janúar. „Aðgerðin gekk vel og var dömunni haldið sofandi í nokkra daga og skurðinum síðan lokað þegar hjartað var búið að jafna sig. Síðan tók við tímabil að jafna sig og fínstilla lyfjameðferð vegna hraðtaktsins. Mögulega mun það eldast af henni og hjartað jafnar sig. Eins og er er hún með aukarafrás sem getur valdið þessum aukaslögum og þarf að meðhöndla með lyfjagjöf. Eftir þetta kom í ljós að daman framleiðir of mikinn mænuvökva þannig að heilahólfin voru farin að stækka en voru ekki farin að þrýsta alvarlega á heilann og heilabörkurinn er heilbrigður. Fór því daman í höfuðaðgerð þar sem slanga var sett úr heilahólfunum niður í maga sem verður þar alla ævi en á ekki að há henni neitt, fyrir utan reglulegt eftirlit. Mænuvökvinn byrjaði að leita út um sárið eftir aðgerðina, þar sem vökvinn var svo mikill, þannig að aðra aðgerð þurfti að gera til að loka betur saumnum. Eftir þetta allt var vökvi við hjartað sem hafði safnast fyrir og fór ekki að sjálfum sér þannig að það þurfti að koma dreni fyrir við hjartað, til að losa vökvann. Þurfti því enn eina aðgerðina til að koma dreninu fyrir. Litla daman er hörku dugleg og lætur þetta ekki á sig fá. Hún er sterk og hefur komist vel í gegnum allar aðgerðirnar aðeins rúmlega mánaðar gömul". Kostnaður við ferðina og aðgerðirnar eru greiddar af ríkinu en ljóst að vinnutap þeirra hjóna er mikið og óvíst hve lengi það stendur. Stúlkan mun þurfa á reglulegum læknisheimsóknum að halda til margra ára. Með góðri tækni og framförum í læknisfræðum í dag mun hún geta lifað eins og hvert annað barn og við vonumst til að allt gangi að óskum.
Síðan þá hefur þetta undið upp á sig og ég skrifað um tilfinningar og allskonar, þegar andinn hellist yfir mig. Til að halda betur utan um þetta ákvað ég að taka þetta allt saman og setja á þessa síðu

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Vangaveltur 12. janúar 2019

Vangaveltur 16. maí 2023

Vangaveltur 12. október 2017