Minningarorð frá leikskólanum

Elsku Vala Mist okkar.
Nú kveðjum við þig elsku vinkona. Þrátt fyrir stuttan tíma saman kenndir þú okkur svo margt og verðum við ævinlega þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þér. Við verðum dugleg að skoða myndir af þér og hugsum til þín. Ljósið þitt mun lifa áfram meðal okkar. Nú ertu engill á himnum. Mikið eigum við eftir að sakna þín hér í leikskólanum. Minning þín lifir áfram í hjörtum okkar.
Allar stundir okkar hér
er mér ljúft að muna
fyllstu þakkir flyt ég
þér fyrir samveruna.
(Höf. ókunnur)
Elsku fjölskylda við sendum ykkur okkar dýpstu samúðarkveðjur við fráfall elsku Völu Mistar.
Fyrir hönd leikskólans Ársala, börn og starfsfólk í Lind.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Vangaveltur 12. janúar 2019

Vangaveltur 12. október 2017

Vangaveltur 16. maí 2023