Færslur

Sýnir færslur frá maí, 2019

Vangaveltur 10. maí 2019

Ég fann þegar ég vaknaði í morgun að boltinn hefði ýtt heldur hressilega á hnappinn minn. Vekjaraklukkan tók mig nefnilega frá andartaki þar sem ég knúsaði litlu dúlluna mína og néri nefinu í mjúku hárinu, en það sem hún hafði silkimjúkt hár 💞 Það er nokkuð síðan ég hef fundið fyrir svona djúpum söknuði, en ólíkt áður, þótti mér vænt um söknuðinn, þar sem ég skil hann. Ég fór á fætur, skutlaði Val og Ásrúnu í vinnu og skóla, kom heim, fékk mér morgunmat, sökkti mér í minningar og bara grét. Ég leyfði mér að finna til, að melta sársaukann og fyrr en varði kviknaði gleði í brjósti mínu við að fara í gegnum minningarnar og stundirnar sem ég átti með henni elsku hjartans Völu Mist minni. Því ástin sem henni fylgdi var svo dásamleg og einlæg. Ég áttaði mig á að mér þykir vænt um þennan söknuð og það sem hann gefur mér, því hann er búinn að móta mig í að vera manneskjan sem ég er í dag. Með því að viðurkenna hann og hlúa að honum, styrkir hann mig. Hann mun vera partur af mér það sem e