Vangaveltur 19. nóvember 2018
Í gærkvöldi fékk Vala Mist krampa/flog og hætti að anda í kjölfarið og fór í hjartastopp. Við framkvæmdum endurlífgun þar til lögregla og sjúkrafólk mætti á staðinn og þau tóku við. Við fórum svo með sjúkraflugi suður og liggur hún núna inni á gjörgæslu á Hringbraut þar sem á að halda henni sofandi fram á miðvikudag og kæla líkamshitann niður í 34° til að leyfa líkamanum að jafna sig og minnka líkur á einhverjum skemmdum. Við fáum aðstöðu á barnadeildinni fyrir dótið okkar og rúm til að sofa í svo við getum verið þar á meðan hún er inniliggjandi.
Dagurinn er tíðindalítill sem er gott á læknamáli, viljum hafa engar frèttir þar til á miðvikudag. Blóðprufurnar koma vel út sem benda til að það hafi ekki verið súrefnisskortur og blóðflæði allan tímann þannig að endurlífgunartilraunir okkar báru vonandi tilætlaðan árangur en auðvitað er ekkert hægt að segja fyrr en á miðvikudag, svo þangað til einbeitum við okkur að því að vera jákvæð og senda Völu Mist krafta með kossum.
Ummæli
Skrifa ummæli