Vangaveltur 15. september 2017

Kærar þakkir fyrir öll hlýju skilaboðin og straumana sem þið sendið okkur, þetta skilar sér allt til okkar. Nýjustu fréttir eru þær að þetta er allt í rétta átt, CRP fer lækkandi og öll veirusýnin koma neikvætt út. Hún mun því hætta á öðru sýklalyfinu en heldur áfram á hinu í 9 daga í viðbót, sem er gefið í æð þannig að við mæðgur munum koma okkur vel fyrir hérna á Barnaspítalanum, umvafin fagfólki með hjarta úr gulli.
Valur og Ásrún ætla að koma um helgina og hlakka ég til eins og krakki til jólanna að geta knúsað þau og kysst og býst fastlega við að Ásrún muni kalla mig kyssuskrímsli þegar henni finnst vera nóg komið 🙂
Bestu kveðjur frá okkur

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Vangaveltur 12. janúar 2019

Vangaveltur 12. október 2017

Vangaveltur 16. maí 2023