Vangaveltur 17. apríl 2017
Hugarfar skipir alveg rosalega miklu máli í lífinu öllu og sérstaklega þegar maður er að takast á við erfið verkefni. Það sem má ekki gleyma er að maður sjálfur stjórnar þessu hugarfari og enginn annar.
Á meðfylgjandi mynd er morgunskammturinn af lyfjunum hennar Völu Mistar og eins og þið sjáið er þetta heil hrúa af sprautum, sem er reyndar búin að minnka (lyfin eru gefin í gegnum magasonduna sem hún er með).
Ég gæti verið sorgmædd eða jafnvel reið og bitur yfir því að litla hetjan mín þurfi svona mikið af lyfjum, þetta sé ekki sanngjarnt.
Ég hinsvegar kýs að vera þakklát. Þakklát fyrir að þessi lyf séu til og hjálpi henni. Þakklát fyrir að hafa aðgengi að þessum lyfjum. Þakklát fyrir að hafa hjúkrunarfræðinga sem taka lyfin til fyrir okkur og rétta okkur þau á bakka. Þakklát fyrir að hafa heilt teymi af læknum sem hafa þekkingu á hvað sé best fyrir hana að fá. Síðast en ekki síst þakklát fyrir hve vel lyfin virka og hve mikið þau hjálpa elsku ofurhetjunni okkar.
Á þessum nótum óska ég ykkur öllum gleðilegra páska, vona að þið njótið þeirra með fólkinu ykkar ❤ knús frá Svíþjóð, Lilja, Valur og stelpurnar

Ummæli
Skrifa ummæli