Vangaveltur 21. apríl 2017
Vala Mist fór í sneiðmyndatöku á höfðinu síðastliðinn miðvikudag og kom þá í ljós að drenið er búið að færast úr stað og er núna upp við vegginn á heilahólfinu. Á endanum á dreninu eru nokkur göt til að drena vökvann niður í maga og á það að vera í miðju hólfinu til að virka sem best.
Þetta er ekki hættulegt en þetta þarf að laga og því er hetjan okkar á leið í aðgerð í næstu viku þar sem hún fær nýtt dren sem verður vonandi til friðs, allt er þegar þrennt er. Við viðurkennum alveg að þetta kom flatt upp á okkur og voru mikil vonbrigði þar sem okkur finnst svo mikill munur á Völu Mist og vorum farin að gerast svo djörf að hugsa um heimferð til Íslands, en þetta er bara ný kennslustund í þolinmæði og æðruleysi sem við náum að tækla saman.
Sendum knús og kossa frá Svíþjóð, Lilja, Valur og stelpurnar

Ummæli
Skrifa ummæli