Vangaveltur 29. ágúst 2017

Síðastliðinn föstudag tókum við það risaskref að losna við magasonduna þar sem Vala Mist er orðin svo dugleg að borða og taka inn lyfin sín í gegnum munninn 💪 við finnum mikinn mun á henni eftir hjartaþræðinguna, hún er orkumeiri, með meiri matarlyst og farin að hreyfa sig mun meira, þannig að aðgerðin gerði henni greinilega gott.
Einnig finnst henni agalega gaman að sitja og hanga í sófanum eins og hinir unglingarnir 😉
Sendum okkar allra bestu kveðjur til allra, Lilja, Valur, Ásrún og Vala Mist


Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Minningarorð frá leikskólanum

Vangaveltur 29. janúar 2021

Vangaveltur 24. nóvember 2022