Vangaveltur 4. júní 2017

Það er kominn júní! Mikið sem tíminn flýtir sér þegar maður skemmtir sér - eða er það ekki annars örugglega þannig? 🙂
Við erum komin í þokkalega rútínu og gengur bara vel. Foreldrarnir eru farnir að þora með barnið út úr húsi á mannamót og er hún meira að segja búin að kíkja í búðir. Það verður að viðurkennast að það tekur tíma að venjast því að vera ekki vafin í bómul á sjúkrahúsinu þar sem hugsað er fyrir öllu fyrir mann en okkur gengur bara þokkalega í þessu 🙂
Við vorum í tékki á Barnaspítalanum á föstudaginn og kom sú skoðun bara ágætlega út og förum aftur eftir tvær vikur, ekki hægt að segja annað en að það er hugsað alveg rosalega vel um okkur 🙂
Margir spyrja mig út í sonduna sem hún er með, en það er rörið sem fer inn um nefið á henni. Þetta er magasonda sem við klárum máltíðir og gefum henni lyfin í gegnum. Rörið sem sagt fer inn um nefið og niður í maga (Þannig að við höfum skemmt okkur konunglega við að breyta laginu "allur matur á að fara upp í munn og ofan í maga" við mikla kátínu stóru systurinnar).
Þegar Vala Mist fékk sýkinguna úti var henni haldið sofandi í nokkra daga og fékk hún þá alla næringu í gegnum sonduna. Þar sem þetta tók á og hún var á mjög sterkum sýklalyfjum fór maginn í rugl og fékk hún mjólk allan sólarhringinn með dælu án pásu. Máltíðunum var síðan stytt niður í styttri tíma þannig að hún fékk pásur á milli máltíða en allt er þetta þolinmǽðisvinna. Vegna þessa þá gleymdi hún hreinlega hvernig ætti að sjúga pela svo viðtók pelaþjálfun 101 sem er enn í fullu fjöri, hún er farin að drekka 20-50 ml af hverri máltíð sem er um 130 ml. Því erum við virkilega þakklát fyrir þessa magasondu því með henni getum við klárað máltíðirnar og prinsessan vex og dafnar. Einnig erum við svo heppin að við fáum dælu lánaða heim sem er mikil hjálp þar sem hver máltíð er að taka um 1.5 klst frá fyrsta súpi.
Enn og aftur þökkum við fyrir samhug og hlýju í okkar garð, þið eruð alveg frábær

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Minningarorð frá leikskólanum

Vangaveltur 29. janúar 2021

Vangaveltur 24. nóvember 2022