Vangaveltur 7. apríl 2017
Vala Mist ofurhetja er búin í aðgerð á höfði þar sem hún fékk nýtt dren, læknarnir vildu drífa hana í aðgerð þar sem hún er laus við sýkinguna og það að tappa af bráðabirgðardreni býður hættunni heim varðandi sýkingar. Aðgerðin gekk vel og eru vonandi rólegir dagar fram undan þar sem við öll náum að jafna okkur eftir aðgerðirnar, en það verður að viðurkennast að foreldrunum finnst alltaf jafn erfitt að horfa á eftir henni inn á skurðstofuna.
Sendum góðar kveðjur heim, Lilja og Valur

Ummæli
Skrifa ummæli