Færslur

Vangaveltur 28. júní 2018

Síðustu dagar hafa verið svolítið erfiðir verðum við að viðurkenna. Vala Mist er búin að vera frekar mikið lasin og með háan hita, við erum samt búin að fá að vita að hún er með veirusýkingu og hvaða veira það er svo það er ágætt. Við erum ennþá að bíða eftir ræktunum til að vita hvort það sé eitthvað annað líka. Það sem er samt búið að vera erfiðast er að hún er búin að fara nokkrum sinnum í hraðtakt og það er búið að vera bras að finna rétta lyfjaskammt til að halda því í skefjum. Nokkrum sinnum hefur verið prufað að gefa henni skot til að "endurræsa" hjartað, sem hefur stundum gengið en ekki alltaf. Núna vilja læknarnir gefa lyfjunum tækifæri til að ná að tækla þetta án þessa inngrips, en hún á það til að rjúka ennþá upp í hraðtakt þó hann sé lægri en hina dagana. Við munum því vera eitthvað hérna áfram og reynum að vera bjartsýn að þetta fari að ganga betur. Bestu kveðjur frá okkur.

Vangaveltur 26. júní 2018

Síðastliðinn sunnudag vorum við fjölskyldan á Akureyri að njóta góða veðursins. Um klukkan 16 erum við inni á kaffihúsi og èg fer að skipta á Völu Mist, sem er ekki frásögufærandi nema því hún fèkk krampa. Við hringjum á sjúkrabíl og förum á sjúkrahúsið á Akureyri þar sem fagfólk sinnti henni vel og vandlega, en þetta var mjög erfitt þar sem krampinn/flogið stóð í ca 50 mínútur. Það var sem betur fer ekki stanslaust en engu síður erfitt að horfa upp á. Hún fór í myndatökur og frekari rannsóknir og þar sem hún er hún, með sitt drama 🙃 ákváðu læknarnir að senda hana suður til sinna sèrfræðinga í nánari skoðun. Vegna þessa langa krampa/flogs, telja læknarnir að það sè best að hún fái flogalyf daglega til að koma í veg fyrir þessa óskemmtilegu uppákomu. Góðu frèttirnar eru þær að hún hefur bara fengið flog þegar hún er með hita, svo hún er greinilega með einhvern þröskuld fyrir þeim og fær ekki flog "af því bara". Núna tekur því við lærdómur hvernig við erum sem best búin v...

Vangaveltur 1. júní 2018

Mynd
Þegar maður er búin að vera í einangrun (föst inni í sama herberginu til að smita ekki hin börnin á deildinni) er mikil dægrastytting að horfa út um gluggann og sjá fólk og bíla fara fram hjá. Sem betur fer var þetta bara veirusýking, slæm kvefpest með háum hita á mannamáli, svo við erum á heimleið í dag ❤ Hitakrampar eru víst frekar algengir, eða um 5% barna koma árlega á Barnaspítalann vegna þess. Krampinn kemur yfirleitt í upphafi veikinda þegar hitinn er að rjúka upp þar sem heilinn missir stjórn á öllum skilaboðunum sem líkaminn sendir og því kemur krampinn. Meðfylgjandi er linkur á upplýsingar um hitakrampa sem èg hvet ykkur til að lesa, èg hefði viljað verið betur undirbúin undir þetta, en eins og margir foreldrar sem hafa séð börnin sín fá svona krampa hélt èg hreinlega að hún væri að deyja. Sem betur fer er hitakrampi einn og sèr ekki skaðlegur, þó hann sè hrikalegur að verða vitni að. Við fjölskyldan í Áshildarholti sendum ykkur okkar bestu kveðjur með þökk fyrir alla ...

Vangaveltur 29. maí 2018

Í morgun fékk Vala Mist hitakrampa, sem er með því hrikalegra sem èg hef upplifað. Hið góða er að það er ekki skaðlegt og er víst frekar algengt. Vil ég færa neyðarlínunni, sjúkraflutningamönnunum og heilbrigðisstarfsfólkinu mínar bestu þakkir, við erum svo sannarlega með toppfólk í fremstu víglínu. Èg er með Völu Mist á Barnaspítalanum þar sem læknarnir vilja skoða hana nánar og útiloka að nokkuð alvarlegt sè að, eins og sýking eða þessháttar. Kærar þakkir fyrir allar kveðjurnar, læt vita þegar það er eitthvað meira að segja. Kv. Lilja

Vangaveltur 27. apríl 2018

Mynd
Góðan daginn. Þið hafið ekki heyrt frá okkur lengi og gildir þar orðatiltækið engar fréttir eru góðar fréttir. Vala Mist fór í segulómun á höfði fyrr í mánuðinum sem kom vel út og hún masteraði það eins og allt annað sem hún gerir, en þetta er 18. svæfingin hennar, þar sem hún er ekki komin með aldur til að liggja grafkyrr í 20 mínútur (eða hvað sem segulómunin tekur langan tíma, er ekki með mínútufjöldann á hreinu). Við lærðum líka að innritun og innlögn á sjúkrahús er ekki það sama, en þegar maður mætir í innritun daginn fyrir aðgerð er bara verið að athuga hvort aðilinn sé í stakk búinn til að mæta í aðgerð/svæfingu daginn eftir, svo förum við bara „heim“ og mætum um morguninn fastandi. Sem betur fer eigum við góða að þannig að við lentum ekki á götunni, en við vorum ekki búin að ráðstafa gistingu þar sem við héldum að við myndum gista á Barnaspítalanum. Þar sem allt kom vel út höldum við áfram reglubundnu eftirliti sem er núna á 3 mánaða fresti hjá hjarlæknum og heila- og ...

Vangaveltur 4. febrúar 2018

Á þessum degi fyrir ári síðan fengum við að vita að það væri líklega eitthvað að höfðinu á Völu Mist svo hún þyrfti í frekari rannsóknir. Ég var að fletta upp í dagbókinni sem èg skrifaði á meðan við vorum úti og þar stóð: "Ég þoli ekki að vera svona hrædd, ég næ varla andanum. Afhverju þarf að vera eitthvað meira að? Ég er svo hrædd að það verði ekki hægt að laga þetta. Afhverju gat lífið ekki leyft mèr að vera foreldri sem kvartar undan svefnleysi og kúkableyjum í stað þess að vera drukkna úr hræðslu að hún bara deyi og ég missi hana frá mèr?". Í dag, nákvæmlega ári síðar sem èg skrifaði þessi orð byrja ég daginn að senda snapp til vina minna þar sem èg sagði frá svefnlausri nóttu (aðallega þar sem við fórum á króksblót í gærkvöldi og það var svo gaman að við komum ekki heim fyrr en um miðja nótt og auðvitað vaknaði daman til að fagna komu okkar heim og hélt stuðinu uppi klukkustund lengur). Stuttu eftir morgunmatinn skipti èg svo um kúkableyju sem endaði þannig að èg ...

Vangaveltur 12. janúar 2018

Mynd
Í dag fögnum við 1 árs afmæli Völu Mistar. Ef seinasta ár hefur kennt mér eitthvað er að njóta hvers dags og finna gleðina í litlu hlutunum. Við getum öll tekið Völu Mist okkur til fyrirmyndar því hamingjusamara og lífsglaðara barn er erfitt að finna 💞 í dag er einnig ljósadagur okkar Skagfirðinga þar sem við kveikjum á kertum til að minnast látinna ástvina og hvet ég ykkur öll til að taka þátt í því með okkur ❤