Færslur

Vangaveltur 10. apríl 2020

Mynd
Ég finn fyrir miklu þakklæti þessa dagana. Eitt af því sem ég er hvað þakklátust fyrir er eiginleiki minn í að gera ekki neitt - og njóta þess. Alls staðar í kringum mig líður mér eins og fólk sé að taka allan hraðann sem er dagsdaglega í kringum það og koma því öllu heim. Alls staðar fáum við skilaboð um hvað við eigum að gera og glansmyndir hversdagsleikans fylla samfélagsmiðlana. Ég er alveg rosalega þakklát fyrir að þurfa ekki að taka þátt í þessu kapphlaupi, hvorki meðvitað né ómeðvitað. Ég veit að skipulag og svona dagskrá hjálpar sumum í gegnum þetta, en fyrir aðra er þetta bara of mikið. Enda átt þú allt í einu að kunna allt og gera helst milljón hluti í einu á meðan. Kenna börnunum svo þau komi nú ekki vitlaus út úr þessum vetri, mastera fjarvinnu frá eldhúsborðinu með alla í kringum þig, að ógleymdum öllum heimilisstörfunum sem hrannast upp á hraða ljóssins því allir eru heima alla daga núna. Svo þegar þú ert ekki að vinna eða sinna heimilinu máttu alls ekki gleyma því...

Vangaveltur 22. mars 2020

Áður hef ég sagt ykkur frá því að ég tók meðvitaða ákvörðun um að vera þakklát fyrir eitthvað á hverjum degi og breyta þannig hugsanagangi mínum. Þessa ákvörðun tók ég þegar við vorum úti í Lund með Völu Mist og þeim rússíbana sem veran þar var. Núna er mikil óvissa í samfélaginu og fólk veit oft ekki í hvern fótinn það á að stíga. Nú á dögunum átti ég samtal við góða konu sem sagði við mig hve heppin ég væri að hafa tekið þessa ákvörðun, þ.e. að vera þakklát, fyrir svona löngu og því kannski betur í stakk búin að takast á við óvissuástandið sem ríkir. Ennfremur sagðist hún dáðst að mér að hafa getið verið svona yfirveguð og tekið þessa ákvörðun. Ég viðurkenni að ég varð hálf orðlaus, því yfirveguð er seinasta orðið sem mér dettur í hug þegar ég hugsa til stundarinnar þegar ég ákvað að ég ætlaði að vera þakklát, en auðvitað vissi hún það ekki. Þegar ég lít til baka átta ég mig samt á því að þakklætisgleraugun voru komin mun fyrr upp hjá mér, en í dag ætla ég að segja ykkur frá stu...

Vangaveltur 14. mars 2020

Í morgun vaknaði ég við það að Ásrún skreið upp í til að kúra bara smá áður en hún myndi byrja daginn. Mikið sem ég er þakklát fyrir ástina sem hún gefur mér skilyrðislaust og leyfir mér að elska sig til baka. Þar sem ég byrjaði daginn á þakklæti áttaði ég mig allt í einu hvað ég er full af þakklæti þessa dagana, sem er virkilega mikilvægt í allri þeirri óvissu sem ríkir um þessar mundir. Ég er þakklát fyrir heilbrigðiskerfið og hve vel er tekið á covid-19. Ég er þakklát fyrir upplýsingafundi og fólki í framlínu, sem virðist vera með óþrjótandi orku og halda áfram að leiða okkur öll í gegnum þetta. Ég er þakklát fyrir að þau taki erfiðar en mikilvægar ákvarðanir þrátt fyrir sérskipaða sérfræðinga í hverju horni. Ég er þakklát fyrir að ég tek ekki mark á þessum sérskipuðu sérfræðingum heldur næ að halda ró minni og hugsa rökrétt.  Ég er líka þakklát fyrir að þurfa ekki að hafa áhyggjur af Völu Mist og veit að það er ein af ástæðunum fyrir að ég næ að halda ró minni og hugsa rök...

Vangaveltur 24. febrúar 2020

Í upphafi árs var ég spurð að því afhverju ég væri að skrifa svona persónulega og deila því með alheiminum, hver væri ástæðan á bak við það. Manneskjunni þótti ég oft heldur persónuleg og hvort ég væri ekki berskjölduð að bera tilfinningar mínar og hugsanir svona á borð. Ég viðurkenni að ég varð hálf orðlaus og gat ekki svarað miklu, enda hafði ég svo sem ekki leitt hugann að því afhverju ég væri að þessu, heldur er þetta bara eitthvað sem ég geri þegar ég finn þörf til að tjá mig og fá útrás fyrir tilfinningar mínar. Síðan þá er ég búin að hugsa þetta örlítið og átta mig á, að líkt og flest allt sem við gerum, að þá eru nokkrar ástæður á bak við hvatann að skrifa svona. Sú fyrsta er mjög sjálfhverf, en það að skrifa svona gefur mér rosalega mikið. Ég get ekki útskýrt útrásina sem ég fæ við að tjá mig svona og hvernig það hjálpar mér að koma reglu á hugsanir mínar og tilfinningar. Einnig finnst mér það styrkja mig að horfast í augu við tilfinningar mínar og við hver skrif finnst...

Vangaveltur 12. janúar 2020

Í dag hefði elsku Vala Mist orðið 3 ára. Það kom eilítið aftan að mér hvað mér brá við það, því hún var svo lítil þegar hún dó en í dag væri hún orðin að krakka, þar sem allt gerist svo hratt á þessum árum. Við leyfðum Ásrúnu að ráða för hvernig við myndum haga deginum, en vegna veðurguðanna ákváðum við að halda okkur bara heima og vera ekki á flakki. Við vörðum því deginum saman að skoða og leika með dótið hennar Völu Mistar, minnast hennar, spila og njóta samverunnar. Ein nig fann ég að ég var loksins tilbúin að skoða myndir og myndbönd sem við fengum frá leikskólanum og vorum við öll til í að hjúfra okkur í sófanum og skoða það saman. Mikið sem það var dásamlegt, sérstaklega myndböndin sem minntu okkur á það hversdagslega og hvernig hún lét ekkert stoppa sig  💕 Í dag sannaðist enn og aftur fyrir mér að þó að hlutir geri verið erfiðir og sárir, geta þeir á sama tíma verið góðir og gefandi, því akkúrat þannig var dagurinn í dag. Èg fer því þakklát og sátt í rúmið í dag....

Vangaveltur 16. desember 2019

Jólin - svo dásamleg og gefandi, en á sama tíma erfið og krefjandi. Út af alls konar. Minningar sem bæði íþyngja manni og gleðja. Jólastússi sem gefur manni bæði ánægju og stress. Hlutir sem gáfu manni ánægju eru allt í einu orðin kvöð. En samt ekki alla daga, þegar svona margar andstæðar tilfinningar flækjast fyrir manni getur maður orðið úrvinda. Allt í einu flýgur tíminn hraðar en á gervihnattaöld, jólin eru handan við hornið og þú veist ekki í hvorn fótinn þú átt að stíga. Alls staðar koma til þín skilaboð - vertu klár með allt fyrir jólin en mundu samt að slaka á! Bakaðu 10 gerðir af smákökum en ekki gleyma núvitund! Finndu fullkomnu jólagjöfina á frábærum kjörum, þarf að vera “rétt” framleidd og er ekki með of mikið kolefnisspor! Farðu á jóla- hlaðborð, -tónleika, -skemmtun en mundu samt að svefn og rútína er mikilvæg. Umfram allt vertu kát og glöð því allt er baðað hátíðarljóma og hamingju. Jeminn hvað það er íþyngjandi, sérstaklega þar sem maður getur ekkert alla daga veri...

Vangaveltur 2. desember 2019

Fyrir rúmri viku síðan var ár síðan Vala Mist lést. Ég var mikið búin að hugsa um hvort þessi tímamót myndu hafa áhrif á mig og þá hvernig, þar til ég talaði við Val um þetta í október og ég áttaði mig á að það væri enginn munur á þessum degi og öðrum, alltaf væri hún ofarlega í huga mér og þessi dagsetning breyttu engu þar um. Þungu fargi var af mér létt og ég hætti að hugsa um þetta. Svo miklu að þegar ég fór að fá skilaboð og hlýjar kveðjur þurfti ég í upphafi dags að hugsa með mér afhverju fólk væri að senda mér þessi skilaboð, ég hreinlega kveikti ekki á perunni. Það er svo mismunandi hvernig við upplifum sorgina og ekki til nein ein rétt eða röng leið í því, ef maður finnur það sem virkar fyrir mann. Fyrir mig var leiðin að þiggja sorgina og það sem hún gefur mér með þakklæti. Ég skil sársaukann sem hún gefur mér og ég passa mig á að afneita honum ekki, því hann þarf sína útrás rétt eins og hlátur og gleði. Ég átta mig líka á að ég er hamingjusöm þrátt fyrir að vera í sorg. Mé...